Um Golfspá

Golfspá er ókeypis veðurspá sniðin að golfi og svarar einfaldri spurningu: hvar og hvenær er best að spila? Síðan nær yfir alla golfvelli landsins, 63 talsins, og sýnir spá allt að sjö daga fram í tímann — klukkutíma fyrir klukkutíma fyrstu dagana — ásamt golfstuðli sem dregur veðrið saman í eina tölu.

Golfstuðullinn

Golfstuðullinn er einkunn frá 0 upp í 10 fyrir spilaveður hverrar klukkustundar. Hann er okkar eigið mat — ekki opinber mælikvarði — og vegur saman þrjá þætti:

Einkunnin birtist einnig í orðum, frá „Kjörið að spila“ niður í „Óspilandi“.

Hvaðan koma gögnin?

Öll gögn á síðunni koma frá viðurkenndum stofnunum og opnum gagnalindum:

Fyrirvari

Veðurspá er alltaf spá. Óvissan vex eftir því sem lengra er horft og spá fyrir daga fimm til sjö er vísbending en ekki loforð — það er merkt sérstaklega á síðunni. Ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli spánna eru á ábyrgð hvers og eins. Mundu líka að völlurinn ræður sér sjálfur: vellir geta verið lokaðir eða á vetrarflötum þótt veðrið sé gott, svo öruggast er að kanna stöðuna hjá klúbbnum áður en lagt er af stað.

Persónuvernd

Golfspá safnar engum persónuupplýsingum og notar engar vefkökur — hvorki til auglýsinga né til að fylgjast með notendum. Heimsóknir eru aðeins taldar í heildartölum sem ekki er hægt að rekja til einstaklinga, og villur í kerfinu skrást nafnlaust svo hægt sé að laga þær. Veljir þú „Sýna staðsetningu mína“ á kortinu er staðsetningin aðeins notuð í vafranum þínum og fer aldrei af tækinu. Þemavalið (ljóst eða dökkt) geymist sömuleiðis í tækinu sjálfu.

Golfspá er sjálfstætt áhugaverkefni og er í stöðugri þróun.